Valmynd

| S | M | Þ | M | F | F | L |
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | ||||||
13 sinnum voru sjúkrabílar kallaðir til þar af í 7 almenna flutninga en inn á milli komu upp 6 neyðarflutningar. F-1 sjúkraflug kom upp á laugardagsmorgun og var sá aðili fluttur til Reykjavíkur. Dælubíll liðsins var kallaður út 01:33 aðfararnótt sunnudags vegna mikils vatnsleka í sumarbústaði, á meðan því var sinnt komu upp tveir neyðarflutningar. Slökkvilið Akureyrar var kallað út vegna umferðarslyss í Fnjóskadal um kl: 17:14 í gær (sunnudag). Dælubíll með björgunarklippur ásamt þremur sjúkrabílum voru sendir á staðinn. Þaðan voru þrír fluttir á slysadeild FSA.
Þorbjörn Haraldsson
Slökkviliðsstjóri