Valmynd

| S | M | Þ | M | F | F | L |
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | ||||||
Í vikunni lauk heimsóknum okkar í 7. bekki í grunnskólum hér á starfssvæði Slökkviliðs Akureyrar einnig fórum við í grunnskólann á Dalvík. Var þetta liður í átaki í forvörnum í kringum áramótin unnið í samvinnu með lögreglu.. Farið er yfir þær hættur sem geta skapast í kringum flugelda og hvað bera að varast. Höfðað er sérstaklega til drengja þar sem að þeir eiga það til að vera fikta með flugelda, taka þá í sundur og safna púðrinu saman til að reyna að búa til öflugri sprengjur. Þessar heimatilbúnu sprengur eru stórhættulegar og hafa oft valdið miklum skaða.
Áhugi krakkanna á verkefninu var mikill. Þó svo að það hafi farin um sum þeirra þegar að þau fengu að sjá myndband þar sem er fjallað um flugeldaslys og afleiðingar þeirra. Miklar umræður voru á eftir hvern fyrir lestur og höfðu margir sögur að segja frá e óhöppum í kringum flugelda.