fimmtudagurinn 09. september 2010
Notendanafn: Lykilorð: Muna lykilorð?
« Mars 2010 »
SMÞMFFL
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031 
Viðburðir
    Könnun
    Ætti að staðsetja eina björgunarþyrlu á Akureyri?

    Nei
    Veit ekki

    Spyrill: Ingimar Eydal
    Sjá allar
    Póstlistaskráning
    Netfang:


    Um Slökkvilið Akureyrar

    Meginhlutverk

    Meginhlutverk Slökkviliðs Akureyrar (S.A.) eru eldvarnir og sjúkraflutningar. Starfsmenn liðsins eru 35, þar af ganga 31 vaktir, 6-7 á hverri vakt. Dagmenn eru 4, slökkviliðsstjóri, tveir eldvarnareftirlitsmenn auk ritarar/ræstinga. Vakthafandi eru bæði þjálfaðir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn. Neyðarverðir 112 taka á móti tilkynningum og þjónustubeiðnum fyrir Slökkvilið Akureyrar, veita þeim þjónustu í útkalli. skráningar á viðbragði, afgreiðsla eftir óskum í fjarskiptum, beintengdur tölvugagnaflutningur og fleira. Slökkviliðið starfar á fjórum starfsstöðvum, Árstíg 2, á Akureyrarflugvelli, í Hrísey og Grímsey.

    Eldur - líf og verðmætabjörgun
    Slökkviliðið starfar samkvæmt ákvæðum laga nr. 75/2000, varðandi eldvarnir. Markmið slökkviliðsins er að bjarga mannslífum, eignum og umhverfi. Slökkviliðið á níu slökkvibifreiðar, sex dælubifreiðar, körfubifreið og tvær þjónustubifreiðar. Í gildi er samningur við Brunavarnir Eyjafjarðar, sem að standa sex hreppar í kringum Akureyri, um að slökkviliðið þjónusti viðbragð og eldvarnareftirlit í þessum sveitarfélögum. Ennfremur er samningur við Isavia um að Slökkviliðið sjái um slökkvi- og björgunarmál á Akureyrarflugvelli. Þar er vakt allan sólarhringinn, tveir á daginn og einn á nóttinni. Isavia leggur til Slökkvibifreið, þjónustubifreið og fjölfar til björgunarþjónustu umhverfis flugvöllinn auk bifreiðar til bremsumælinga.  Auk þess að sinna brunaútköllum veitir slökkviliðið ýmsa aðra neyðarþjónustu, s.s. vegna umferðaslysa, mengunarslysa, vatnsleka o.fl. Eldvarnareftirlit er hluti af starfsemi slökkviliðsins. Fyrir utan reglulegar skoðanir í fyrirtækjum og stofnunum er starfsemi eftirlitsins fólgin í yfirferð teikninga, aðstoð við hönnuði og iðnaðarmenn, auk fræðslu fyrir almenning, fyrirtæki og stofnarnir.  Slökkviliðið sér einnig um þjálfun og fræðslu fyrir flugvallarverði á öllum landsbyggðarflugvöllum samkvæmt samningi við Isavia.

    Sjúkraflutningar /Sjúkraflug
    Slökkviliðið annast sjúkraflutninga á svæði Heilsugæslustöðvar Akureyrar, skv. samning við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Sjúkraflutningar eru hluti af heilbrigðisþjónustunni með það að markmiði að bjarga mannslífum, veita sjúkum og slösuðum aðhlynningu og koma þeim undir læknishendur. Til þess hefur slökkviliðið fjórar sjúkrabifreiðar sem Rauði Kross Íslands á og rekur. Bifreiðarnar eru mjög fullkomnar og vel útbúnar tækjum og búnaði. M.a. er í þeim hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki og á hverri vakt eru sjúkraflutningamenn sem hafa réttindi til að nota slíkt tæki. Allir sjúkraflutningamenn hafa grunnnámskeið sjúkraflutninga auk þess sem stöðug endurmenntun og æfingar fara fram hjá liðinu, m.a. í góðri samvinnu við lækna á F.S.A og sjúkraflutningaskólann.

     

    Slökkviliðið mannar einnig allt sjúkraflug á landinu. En um samstarf þriggja aðila er að ræða þ.e Mýflug sér um flugvélakost, SA sendir ávallt með einn eða tvo neyðarflutningamenn og sjúkrahúsið á Akureyri sendir lækna í þau flug sem þess er óskað. SA hefur mannað sjúkraflug síðan 1997 og eru nú farin um 500 sjúkraflug á ári hverju.

     

     

    Yfirstjórn S.A.

    Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri (thorbjornh@akureyri.is)
    Ingimar Eydal aðstoðarslökkviliðsstjóri (ingimar@akureyri.is)
    Viðar Þorleifsson, Aðalvarðstjóri (vidar@akureyri.is)

    Varðstjórar:
    Gunnar Björgvinsson A-vakt (gunnarbjo@hotmail.com)
    Sveinbjörn Dúason, B-vakt (sveinbjornd@akureyri.is)
    Jóhann Þór Jónsson C-vakt (johannj@akureyri.is 
    Jón G. Knutsen, D-vakt (jknutsen@akureyri.is)

     

     

     

     

     

    Heimilisfang er Árstígur 2, 600 Akureyri
    Netfang slokkvilid@akureyri.is
    Veffang
    www.slokkvilid.is

    Símar eru:
    112 (neyðarsími)
    461 4200 (varðstofa)
    461 4201 (Slökkviliðsstjóri)
    461 4202 (Aðstoðarslökkviliðsstjóri)
    461 4203 (Eldvarnareftirlitsmaður)
    461 4204 (Eldvarnareftirlitsmaður)

    461 4205 (fax)