Valmynd

Laun starfsmanna eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Byrjunarlaun 25 ára slökkviliðs- og sjúkraflutninganema, eftir 6 mán.starf sem lokið hefur grunnnámi sjúkraflutninga (EMT-basic), eru kr. 155.124 (lfl. 132+2). Vaktaálag er kr. 66.302 og þrekálag kr. 10.500. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins leggur til 2,0% af heildarlaunum á móti 2% framlagi starfsmanns í viðbótarlífeyrissparnað. Desemberuppbót er að meðaltali kr. 4.977 á mánuði og orlofsuppbót að meðaltali kr. 1.867. Samtals eru því byrjunarlaun kr. 243.270 að meðaltali á mánuði. Uppbæturnar eru greiddar einu sinni á ári. Starfsmaður sem lokið hefur neyðarbílsnámi (EMT-intermediate) eftir u.þ.b. 36 mánuði í starfi og er 30 ára er með kr. 269.466 í laun að meðaltali á mánuði og hefur hann þá lokið þeim námskeiðum þarf til að geta verið í flestum skráningum á vaktinni. Í ofangreindum launatölum er innifalin greiðsla vegna þátttöku starfsmanns í sí - og endurmenntunaráætlun slökkviliðsins. Starfsmaður skilar þar allt að 52 tímum á ári í endurmenntun utan reglubundins vinnutíma. Unnið er á tólf tíma löngum vöktum ýmist 4 eða 5 daga í senn með jafn löngum vaktafríum. Starfsmenn skila þannig að meðaltali 42 stunda vinnuviku og að meðaltali eru 15,2 vaktir í mánuði. Gerð er krafa um að slökkviliðsmenn standist þrekpróf á hverju ári. Af þeim sökum er þeim gert að stunda þá líkamsþjálfun sem nauðsynleg er til að geta sinnt starfinu. Til þess fá slökkviliðsmenn æfingakort í líkamsræktarstöð, þeim að kostnaðarlausu. Sumarleyfi er 192 tímar á ári að 30 ára aldri, 216 tímar að 38 ára aldri og 240 tímar eftir það. Vetrarleyfi er 88 tímar á ári.
Kjarasamning LSS og LS má nálgast hér.![]()