Eldvarnir í fjölbýli

Ókeypis skoðun eldvarna í sameignum fjölbýlishúsa Eldvarnareftirlit Slökkviliðs Akureyrar (SA) býður íbúum fjölbýlishúsa að gera úttekt á eldvörnum í

Eldvarnaskoðun

Ókeypis skoðun eldvarna í sameignum fjölbýlishúsa

Eldvarnareftirlit Slökkviliðs Akureyrar (SA) býður íbúum fjölbýlishúsa að gera úttekt á eldvörnum í sameign þeim að kostnaðarlausu. Fulltrúar húsfélaga geta pantað skoðun hér á vefnum. Skilyrði er að sá sem pantar skoðun hafi umboð húsfélagsins til þess og mikilvægt er að teikningar liggi fyrir þegar skoðun fer fram. Fulltrúi eldvarnareftirlits SA skoðar sameignina eins fljótt og kostur er í fylgd fulltrúa húsfélagsins og sendir honum skriflegar athugasemdir.

Athugasemdirnar ber að skilja sem leiðbeiningar en ekki kröfur en eldvarnareftirlitið hvetur fólk engu að síður til þess að taka mið af athugasemdunum og ráðast í úrbætur sem fyrst. Eldvarnir geta í mörgum tilvikum orðið til þess að bjarga lífi og heilsu fólks og koma í veg fyrir óþarflega miklar skemmdir af völdum elds og reyks.

Getið sent beiðni inn á netfangið eldvarnareftirlit@akureyri.is