Grænland 2012
- 9 stk.
- 03.02.2012
Vítisvika er þjálfunar og fræðsluvika fyrir nýjustu liðsmenn Slökkviliðs Akureyrar. Markmiðið er að gera þá hæfari slökkviliðsmenn og undirbúa þá fyrir þau tilfelli sem bíða þeirra.
Skoða myndirAllar vaktir taka reykköfunaræfingar í október undir stjórn Vilhelms A. Hallgrímssonar. Fyrst er hálfur dagur í bóklegt þar sem farið er í upprifjun á vinnureglum og aðferðum. Síðan er hálfur dagur í verklegar æfingar. Við höfum afnot af húsi við Hafnarstræti sem ekki er búið í og er tilvalið til leitaræfinga. Notaður er leikhúsreykur auk blindmaska til að þjálfa menn í leit innanhúss.
Skoða myndirStórfenglegur útskriftardagur var haldinn hér hjá Slökkviliði Akureyrar í dag. Elsti árgangur 19 leikskóla á svæðinu kom í heimsókn til okkar hér á slökkvistöðina. Verkefnið Logi og Glóð er búið að vera í gangi á leikskólunum í vetur og hefur gengið vonum framar. Árgangurinn telur um 300 börn og var heldur betur gaman að fá þau til okkar. Þrautabraut hafði verið komið upp og gripu þessir frábæru aðstoðarmenn slökkviliðsins í stúta og sprautuðu af krafti. Það vantaði ekki gleðina í hópinn ekki lét liðið á sig fá þó einhverjir blotnuðu. Grillaðar voru pylsur ofan í mannskapinn og var tekið hraustlega til matar. Myndirnar tóku Finnbogi Marinósson hjá Dagsljós á Akureyri ásamt IE.
Skoða myndirTíu manna hópur frá Slökkviliði Akureyrar sótti ráðstefnuna heim þetta árið en hún var haldin í Baltimore, USA, dagana 26.-29. mars sl.
Skoða myndir