Auglýsing - Sumarafleysingar hjá Slökkviliði Akureyrar

Sumarafleysingar hjá Slökkviliði Akureyrar

Slökkvilið Akureyrar óskar eftir að ráða slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn til starfa í sumarafleysingar. Um er að ræða afleysingastörf við sjúkraflutninga, slökkvistörf og önnur almenn störf slökkviliðsins.

Hæfniskröfur:

  • · Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.
  • · Ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið er skilyrði.
  • · Iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærileg menntun er skilyrði.
  • · Þeir sem ráðnir eru til starfa sem slökkviliðsmenn skulu hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • · Viðkomandi þarf að standast þrekpróf.
  • · Hafa jákvætt hugarfar og færni í mannlegum samskiptum.
  • · Reynsla af störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er kostur.
    • · Gerð er krafa um vammleysi umsækjanda.

Framangreindum hæfniskröfum er ekki raðað eftir mikilvægi. Akureyrarbær áskilur sér rétt til að óska eftir umsögnum frá fyrri vinnuveitendum.

 

Eftirfarandi fylgigögnum þarf að skila með umsókn:

  • · Læknisvottorði.
  • · Prófskírteinum.
  • · Ljósriti af ökuskírteini.
  • · Ökuferilsskrá.
  • · Almennri ferilskrá

 

Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í störfin.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma 460-1060.

Nánari upplýsingar um starfið veita Þorvaldur Helgi Auðunsson, slökkviliðsstjóri 461-4201thorvaldurh@akureyri.is og Björn Heiðar Sigurbjörnsson aðstoðarslökkviliðsstjóri 461-4202 bjornh@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.

Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2014