112 dagurinn

Markmiðið með 112-deginum er að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Hér á Akureyri munum við leggja áherslu á samvinnu viðbragðsaðila og samvinnu atvinnumanna og áhugamanna.  Einnig verður ljósmyndasýningin Útkall 2005 opnuð á Glerártorgi.