112 opnar varðstofu á Akureyri

Að sögn Dagnýjar Halldórsdóttur aðstoðarframkvæmdastjóra er markmiðið að vera með um fimm neyðarverði á Akureyri og verða þeir hrein viðbót við núverandi fjölda starfsmanna.

Nú eru fimm neyðarverðir á vakt í Reykjavík að degi til og á álagstímum en þeim fjölgar í sjö þegar varðstofan á Akureyri er fullmönnuð.

- Varðstofan á Akureyri er tengd öllum okkar fjarskipta- og upplýsingakerfum og starfar með sama hætti og varðstofan fyrir sunnan. Það er mikið öryggi í því fyrir okkur að hafa vel mannaða stöð á Akureyri ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis hjá okkur í Reykjavík. Við lítum einnig á það sem mikinn kost að hafa fólk á vakt með góða þekkingu á staðháttum og samfélaginu á Akureyri og í nálægum byggðum, segir Dagný.

25 neyðarverðir starfa nú hjá 112. Þeir manna varðstofuna á Akureyri og í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð allan sólarhringinn, árið um kring, og afgreiða um 190 þúsund neyðarsímtöl á ári hverju. Í langflestum tilvikum er óskað eftir aðstoð lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliða.

vardstofa112010

Þorbjörn Haraldsson býður nýja starfsmenn 112 á Akureyri velkomna til starfa.
F.v Dagný aðst.framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, Gísli og Arinbjörn neyðarverðir, Eiríkur sviðstjóri 112 og Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri á Akureyri