500 sjúklingar með sjúkraflugi

Í dag fluttum við fimmhundraðasta sjúklinginn með sjúkraflugi á þessu ári. Það er töluverð aukning frá því í fyrra þar sem allt árið í fyrra voru fluttir 489 sjúklingar í 474 sjúkraflugum. Einu sinni áður hefur fjöldi sjúklinga í sjúkraflugi farið yfir 500, en það var árið 2007 en þá voru fluttir 533 sjúklingar.