Aðalstöð slökkviliðsins

"3 Athugun um flutning SVA upp á Rangárvelli
2005020009
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra um flutning Strætisvagna Akureyrar að Rangárvöllum.
Framkvæmdaráð samþykkir að gengið verði til samninga við Norðurorku hf. um leigu á aðstöðu fyrir SVA að Rangárvöllum og að flutningur starfseminnar fari fram eins fljótt og unnt er. Núverandi húsnæði SVA fái Slökkvilið Akureyrar til afnota."

Þetta mun gjör breyta aðstöðu slökkviliðsins á allan hátt. Við munum geta búið betur að starfsmönnum okkar og aðstaðan fyrir tæki og búnað stór batna. Þetta mun einnig gera okkur kleyft að halda áfram með þá vinnu sem við höfum lagt út í með þá framtíðarsýn sem við höfum vegna menntunarmála á landsbyggðinni, ekki bara okkar menntunarmála heldur líka annara slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.