Annasöm helgi

13 sinnum voru sjúkrabílar kallaðir til þar af í 7 almenna flutninga en inn á milli komu upp 6 neyðarflutningar. F-1 sjúkraflug kom upp á laugardagsmorgun og var sá aðili fluttur til Reykjavíkur. Dælubíll liðsins var kallaður út 01:33 aðfararnótt sunnudags vegna mikils vatnsleka í sumarbústaði,  á meðan því var sinnt komu upp tveir neyðarflutningar. Slökkvilið Akureyrar var kallað út vegna umferðarslyss í Fnjóskadal um kl: 17:14 í gær (sunnudag).  Dælubíll með björgunarklippur ásamt þremur sjúkrabílum voru sendir á staðinn.  Þaðan voru þrír fluttir á slysadeild FSA.

Þorbjörn Haraldsson

Slökkviliðsstjóri