Fréttir

Deildarstjóri tækja- og búnaðardeildar SA

Deildarstjóri tækja- og búnaðar er ný staða hjá Slökkviliði Akureyrar.  Undanfarin ár hefur orðið allnokkur aukning og endurnýjun í tækjum og búnaði hjá SA.  Við erum með 7 dælubíla á þremur stöðum,  körfubíl, 4 sjúkrabíla, tvo þjónustubíla á flugvelli, þrjá þjónustubíla í Árstíg, bát, átthjól, eiturefnakerru auk alls smærri búnaðar s.s. klippur, reykköfunartæki og margt fleira.  Allt þetta kallar á gott utanumhald og var löngu tímabært að ráða sérstakan aðila til þess.

Æfing í Hrísey

A og B vaktir Slökkviliðs Akureyrar æfðu í Hrísey ásamt liðsmönnum SA í Hrísey sl. laugardag, 5. maí. Settur var upp vettvangur þar sem var um eld í fiskvinnsluhúsi, hluti hússins alelda en fara þurfti í lífbjörgun í öðrum hluta hússins, sem sagt bæði reykköfun og vatnsöflun. Hörkuæfing !! 

Erill á vaktinni í nótt.

Slökkvilið Akureyrar var kallað út kl 5:37 í morgun vegna elds í gámi við Hótel Norðurland við Geislagötu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.  Þegar því starfi var að ljúka barst önnur tilkynning um eld í ruslagámi við Kaffi Akureyri. Þriðja tilkynningin barst svo mínútu seinna um eld í stórum ruslagámi bak við Skipagötu 12. Tveir dælubílar og aukavakt voru kallaðir út til viðbótar til þess að aðstoða við að slökkva í gámunum.

Olíutengivagn veltur á Öxnadalsheiði.

Tilkynning barst slökkviliðinu kl.08:42, um að tengivagn með olíu hafi oltið í Öxnadalsheiði engin séu slys á fólki og um að minniháttar leka sé að ræða c.a.200-300 lítrar. Náðist samband við ökumann olíubílsins sem staðfestir þetta og segir jafnframt að um skipaolíu sé að ræða.

Enn kveikt í sinu.. með leyfi Sýslumanns

Eins og Akureyringar og Eyfirðingar allir tóku eftir ákváðu nokkrir bændur í Eyjafjarðarsveit að brenna sinu um helgina.  Í sunnanáttinni barst reykurinn yfir nærliggjandi sveitir, á laugardaginn fengu íbúar austan fjarðar reykinn yfir sig en í blíðviðrinu í gær barst reykurinn yfir Akureyri og Hörgárbyggð.  Slökkviliðið hefði svo gjarnan viljað slökkva þennan eld eins og aðra elda en þegar menn hafa leyfi sýslumanns og lögin á bakvið sig þá getum við því miður lítið gert nema kallað eftir breytingum á viðkomandi lögum. Frétt mbl.is um málið.Frétt RUV um málið.

Sokkarýming í Síðuskóla

Frétt fengin af heimasíðu Síðuskóla. Föstudaginn 20. apríl, var haldin rýmingaræfing. Þessi æfing var sokkaæfing, en það köllum við æfingar þar sem nemendur vita ekki fyrirfram að það er æfing og þurfa að stökkva út eins og þeir eru staddir þá stundina þegar bjallan glymur. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að sjá hvernig nemendur bregðast við hættunni þegar enginn er fyrirvarinn.

Ný heimasíða sjúkraflugs

Á heimasíðu FSA hefur verið stofnuð sérstök síða varðandi sjúkraflug.  Tilgangurinn með þessari vefsíðu er að koma á framfæri upplýsingum og fréttum um þjónustu lækna og sjúkraflutningamanna sem starfa við sjúkraflug frá Akureyri. Upplýsingarnar eru f.o.f. ætlaðar heilbrigðisstarfsfólki í dreifbýli sem nýtir þessa þjónustu. Heimasíða FSA

Útköll vegna sinu og elds í rusli

Á laugardagskvöldið sl. var Slökkviliðið kallað út vegna elds í sinu í Lækjargili á Akureyri, sunnan við FSA.  Voru sendir dælubílar af báðum stöðvum, Árstíg og flugvelli og tókst að slökkva eldinn á skömmum tíma þrátt fyrir erfiðar aðstæður en þarna er skógarreitur, mjög bratt og erfitt að komast að.  Gerðar voru ráðstafanir til að forða því að reykur færi inn á loftræstikerfi FSA.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við þurfum að slökkva í sinu á þessum stað en þarna er mikill og þykkur gróður og eldur á greiða leið upp brekkuna.  Í öllum tilvikum hefur verið um íkveikju að ræða. Frétt akureyri.net

Athyglisverð grein í Læknablaðinu

Í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er athyglisverð grein um stöðu sjúkraflutninga á landinu utan höfuðborgarsvæðissins.  Höfundar eru læknar á FSA, ásamt skólastjóra Sjúkraflutningaskólans og bráðatæknis hjá Slökkviliði Akureyrar en þessir aðilar hafa unnið mikið að málefnum sjúkraflutninga í landinu bæði á landi og í lofti.

Sjúkraflug til Grænlands

Slökkvilið Akureyrar er þessa stundina á leið til Nuuk á vesturströnd Grænlands með sjúkraflugvél Mýflugs að sækja tvo sjúklinga.