Árekstur á Akureyri

Mynd frá vikudagur.is
Mynd frá vikudagur.is

Slökkvilið Akureyrar var kallað út um kl. 14:30 í dag þar sem harður árekstur varð við gatnamótin Glerárgata og Strandgata. Dælubíll með klippur var kallaður ásamt sjúkrabíl á staðinn þar sem fyrstu uplýsingar voru mjög svo óljósar. Ekki þurfti að beita klippum þar sem allir komust út af sjálfsdáðum. Tvennt var flutt á slysadeild til frekari aðhlynningar. Sjá frekari frétt á vikudagur.is