Bátaskýli brennur

Dælubíll var sendur á staðinn en auk þess dælubíll af flugvelli.  Bátaskýlið er á tveimur hæðum og var efri hæðin nánast alelda þegar slökkviiðið kom á staðinn.  Þurfti að leggja um 100 metra lögn frá bílastæði og niður að bátaskýlinu en enginn vegur eða slóði er niður að skýlinu.  Slökkviliðið náði gaskút úr eldinum og kældi hann en hann var orðin mjög heitur.  Ennfremur var umhverfið varið en mikill trjágróður er í brekkunni ofan við skýlið.  Slökkvistarfi lauk um kl. 1 í nótt.  Bátaskýlið er ónýtt og allt innbú þar á meðal lítill plastbátur .  Ekkert rafmagn var í skýlinu og er grunur um íkveikju.

Eldur í Bátaskýli, Gunnar A. Vilhjálmsson og Hulda Þorgilsdóttir

Hulda Þorgilsdóttir og Gunnar A. Vilhjálmsson í slökkvistarfi.

Eldur í Bátaskýli, brattur stigi niður að skýlinu.

Skýlið stendur neðst í fjöruborði og liggur brattur stigi niður að því.

Eldur í Bátaskýli, Gunnar A. Vilhjálmsson sprautar inn á neðri hæðina.

Hulda Þorgilsdóttir  í slökkvistarfi.