Björn frá Vopnafirði

Björn hefur unnið mjög mikið og gott starf á sviði hlutastarfandi slökkviliða og eldvarna-eftirlits. Hann mun sannarlega auka breidd Slökkviliðs Akureyrar í því að veita betri þjónustu. Verksvið hans er að starfa sem eldvarnaeftirlitsmaður og auk þess vinna fyrir okkur verkefnavinnu sem felst í að auka og bæta fyrirkomulag þjónustu okkar við önnur sveitarfélög. Í dag er Slökkvilið Akureyrar að þjónusta 5 sveitarfélög. Björn mun kynnast starfseminni/verklagi og tækjum með því að vinna á vöktum til byrjun september mánaðar.