Ekkert fikt

Í tengslum við verkefnið heimsækjum við alla 7. bekki í grunnskólum á starfssvæði slökkviliðsins. Er þetta liður í forvarnarátaki í kringum áramótin. Farið er yfir þær hættur sem geta skapast þegar flugeldar eru meðhöndlaðir og hvað ber að varast. Reynt er að höfða sérstaklega til drengja þar sem þeir eiga það til að vera að fikta með flugelda, taka þá í sundur og safna púðrinu saman til að reyna að búa til öflugri sprengjur. Þessar heimatilbúnu sprengjur eru stórhættulegar og hafa oft valdið miklum skaða en það hefur sýnt sig að það eru drengir á aldrinum 9-16 ára sem verða helst fyrir skaða af völdum flugelda. Áhugi krakkanna á verkefninu er mikill og viðbúið er að fari um sum þeirra þegar þau sjá myndir af afleiðingum slysa af völdum flugelda. Einnig fá þau að sjá myndband þar sem er fjallað um flugeldaslys og afleiðingar þeirra. Vonum við að umræður skapist eftir hvern fyrirlestur og að margir hafi sögur að segja frá óhöppum í kringum flugelda sem vonandi geta orðið víti til varnaðar.