Eldur í Becromal

kl 01:51 barst Slökkviliðinu á Akureyri tilkynning um eld í verksmiðju Becromal við Krossanes á Akureyri.  Þegar Slökkviliðið kom á staðinn hafði starfsfólk verksmiðjunar komið sér út og safnast saman á fyrirfram ákveðnu svæði.  Reykkafarar fóru inn og slökktu eldinn sem var bundinn við eina vélarsamstæðu í vinnslusal verksmiðjunar.  Um töluverðan eld var að ræða en greiðlega gékk að slökkva hann.  Verksmiðjan var síðan reyklosuð en töluverður reykur hafði myndast.  Það vakti athygli slökkviliðsmanna hversu góð viðbrögð starfsmanna verksmiðjunnar voru en þeir yfirgáfu verksmiðjurnar á undraverðum tíma og er því hægt að segja að starfsmenn hafi ekki verið í mikilli hættu.