Eldur í fjölbýlishúsi

Slökkviliðið var kallað út rétt fyrir kl. 15 í dag vegna elds í fjölbylishúsi við Hvannavelli á Akureyri í dag. Við komu slökkviliðsins var mikill hiti og eldur á því svæði sem eldurinn kom upp en þar varð mikið eignatjón. Vel gekk að slökkva eldinn en einnig þurfti að fara um allt húsið til að tryggja að allir hefðu komist út.