Eldur Í hesthúsi

Mikið vonsku veður er á svæðinu og blind bylur. Ferð slökkviliðsins á eldstað sóttist hægt sökum slæms skyggnis. Hjálparlið í Eyjafirði (Bj. Dalbjörg) var einnig kallað út, en sveitin sú aðstoðar liðið í eldútköllum í Eyjafirði. Fljótlega fengust upplýsingar um að engin dýr væru í húsunum og þegar slökkviliðið átti skammt eftir þá bárust upplýsingar um að húsið væri að mestu brunnið. Unnið var í að slökkva í glæðum og síðan að tryggja lausar þakplötur. Slökkvistarfi lauk um kl: 02:30

Nú er unnið að frágangi eftir útkallið en slökkvibíllinn var vel snjó brynjaður þegar hann kom aftur á stöðina.

 

Þorbjörn Haraldsson

Slökkviliðsstjóri.