Eldur í Keilusíðu 9

Mikill reykur var í íbúðinni og var hún reykræst.  Talsverðar skemmdir urðu á innréttingu í eldhúsi af völdum elds jafnframt því sem nokkrar skemmdir urðu af völdum reyks og sóts.

Þá varð bílvelta á Svalbarðsströnd á sjötta tímanum í dag.  Sjúkrabíll flutti 4 slasaða á FSA en talið er að þeir séu lítið slasaðir.