Eldur í Oddeyrargötu 10

Miklar skemmdir urðu á hæðinni þar sem eldurinn kom upp og er nánast allt ónýt á þeirri hæð.  Skemmdir eru einnig á neðri hæð og í hinni íbúðinni vegna reyks.  Talið er að eldurinn hafi komið upp í sjónvarpi.

Nágrannar í húsi á móti brugðust skjótt við og opnuðu hús sitt fyrir íbúum hússins og veittu þeim gott skjól meðan á slökkvistarfi stóð.  Eiga þeir þakkir skildar.