Eldur í sumarhúsi

Vakthafandi vakt fór á staðinn á tveimur dælubílum með um 13000 lítra af vatni, kallaðir voru inn menn af frívakt. Þegar á staðinn var komið var talsverður reykur undan þaki hússins. Slökkvistarf gekk greiðlega fyrir sig og er nú verið að rjúfa veggi og loft til að tryggja að ekki leynist glóð milli þilja. sendur var aukamannskapur á staðinn og eru menn að störfum þessa stundina.