Eldur í þvottahúsi heimavistar MA

Eldur kom upp í þurrkara í kjallara heimavistar Menntaskólans á Akureyri við Eyrarlandsveg 17:00 í dag. Brunaviðvörunarkerfi hússins gerði viðvart og fór vakthafandi vakt á staðinn á dælubíl og sjúkrabíl. Reykkafarar fóru inn í kjallarann og gekk vel að slökkva staðbundinn eld í þurrkaranum og var rýmið reykræst í kjölfarið. Talsverðar sót og reykskemmdir eru í þvottahúsinu en engum íbúa vistarinnar varð meint af.