Eldvarnarátak 2013

Eldvarnarátakið LSS og slökkviliðsmanna árið 2013.

Slökkviliðsmenn og konur slökkviliðs Akureyrar verða nú á ferðinni í grunnskóla á Akureyri og nágrenni þessa vikuna. Slökkviliðið heimsækir alla 3. bekkinga á svæðinu og fara yfir eldvarnir með þeim. Krakkarnir eru þær bestu forvarnir sem hægt er að hafa og taka þau af miklum áhuga við þessari fræðslu og fara með það heim.

Verkefnið byggist á að kynna fyrir krökkunum slökkviálfana Loga og Glóð sem eru sérlegir aðstoðamenn við fræðsluna og
fá öll börn í 3. bekk söguna af hetjulegri baráttu þeirra systkina við Brennu-Varg að gjöf. Í sögunni er eldvarnagetraun og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þá sem senda LSS réttar lausnir. Krakkarnir fá einnig handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimila með sér heim.

 

Logi og Glóð