Eldvarnir í leikskólum, Logi og Glóð.

Heimsóttum við í kringum 350 börn í 18 leikskólum.  Hver heimsókn tók um klukkustund.  Alls staðar var mjög vel tekið á móti okkur og sýndu börnin þessu verkefni mikinn áhuga.  Farið var yfir verkefnið með börnunum í heild sinni.  Einnig var þeim var kennt hvert þau eigi að leita eftir aðstoð ef eitthvað kemur upp á þ.e. að hringja í 112 og hvernig  þau eigi að bregðast við ef eldur kemur upp.  Börnin fengu að sjá hvernig slökkviliðsmaður lítur út þegar að hann er klæddur í fullan skrúða, þ.e. í slökkvigalla og með reykköfunartæki á sér.  Eftir að hafa rætt við börnin inni þá var haldið út og slökkviliðsbifreið skoðuð.

Öll börnin fengu afhentar möppur með verkefnum og viðurkenningarskjal um þátttöku þeirra í þessu verkefni.   Tveir starfsmenn slökkviliðsins, einn starfsmaður eldvarnareftirlits og einn slökkviliðsmaður,  fóru í þessar heimsóknir í hvert skipti.