Endurmenntun “EMT- Basic”

Sjúkraflutningamenn slökkviliðsins taka endurmenntun í grunnmenntun á hverju ári, tvo daga í senn. Í Slökkviliði Akureyrar eru 29 menn af 32 með grunnmenntun í sjúkraflutningum. Í framhaldi af þessu námsskeiði mun verða endurmenntun neyðarflutningamanna “ EMT-Intermediate “. Það námsskeið er endurmenntun fyrir þá sem hafa tekið framhaldsmenntun í sjúkraflutningum.