Fjölgun í heildarútköllum slökkviliðs Akureyrar

Tveir öflugir
Tveir öflugir

Slökkvilið Akureyrar var kallað út 2306 sinnum á árinu 2012. Sem er um 8% fjölgun á milli áranna 2011-2012

  • 1,768 sinnum var liðið kallað út á sjúkrabílum árið 2012. En það er um 13% aukning á milli áranna 2011-2012. Fjöldi sjúkraflutninga hefur verið að rokka þetta í 1500-1600 undanfarin ár, en met hefur því verið sett í flutningum árið 2012.
  • 463 sjúkraflug voru á árinu 2012 og fluttir 487 sjúklingar í þessum flugum. En um er að ræða um 2% fækkun á flugum milli ára eða 11 flug. Fjöldi sjúkrafluga helst nokkuð stöðugur á milli ára, en þau hafa flest orðið 494 árið 2008. Sjúkraflutningamenn frá slökkviliði Akureyrar hafa farið í 4916 sjúkraflug frá því 1997.
  • 75 sinnum voru dælu- og björgunarbílar liðsins kallaðir út en það er um 20% fækkun á milli ára. Frá árinu 2009 hefur útköllum á dælu- og björgunarbifreiðar liðsins fækkað um 47%.

Þorbjörn Guðrúnarson

Slökkviliðsstjóri slökkviliðs Akureyrar