Fjórir björguðust úr brennandi húsi

Reykkafarar brutu sér leið inn í húsið og fundu tvo sofandi í svefnherbergi á miðhæð og björguðu þeim út en mikill reykur var þá kominn um allt húsið.  Grunur lék á um að fleiri væru sofandi í kjallara hússins en talsverður eldur var í þvottahúsi í kjallara.  Fleiri reykkafarar voru þá sendir inn til að leita af fólki en enginn reyndist vera í svefnherbergi í kjallara hússins.

Allir fjórir íbúar hússins voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild með snert af reykkeitrun ásamt einum hundi sem komið var til dýralæknis.  Slökkvistarf tók ekki langan tíma en nokkurn tíma tók að reykkræsta húsið.

Talsverðar skemmdir urðu á innbúi hússins af völdum elds og reyks.