Friðsæl jól

Nokkrir sjúkraflutningar voru um hátíðirnar en engin slys á starfssvæðinu.  Farið var í tvö sjúkraflug  til Hafnar í Hornafirði á Jóladag og eitt sjúkraflug var á annan í jólum þar sem sjúklingur frá Sauðárkróki var fluttur til Reykjavíkur.

Óskandi er að næstu dagar verði jafn friðsamir en forvarnardeild SA fór m.a. í alla 7-9 bekki fyrir jólin með myndbandið "Ekkert fikt" þar sem varað er við fikti með flugeldum.  Myndbandið er frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg og hægt er að nálgast það hér.