Fyrirlestur um eldinn í Mont Blanc göngunum 1999.

Eric kom hingað til lands í júlí og hélt fyrirlestur á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins þann 6. júlí. Í framhaldinu fór hann ferð um landið með fjölskyldu sína, með tveggja daga viðkomu hér á Akureyri. Þann 13. júlí hélt Erik fyrirlestur fyrir okkur um brunann og allt það umfang sem varð vegna hans og sýndi auk þess myndir af vettvangi. Þetta var mjög fróðlegt fyrir okkur og í sjálfum sér ómetanlegt með tilliti til þeirra gangnaframkvæmda sem standa til í Vaðlaheiðinni. Við þökkum Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins fyrir frábært framtak.