Gabb

Rétt fyrir klukkan sex í gærdag var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um að eldur væri laus í Rósenborg, sem er gamli barnaskólinn á Akureyri við Skólastíg. Hér er um stórt húsnæði að ræða í íbúðabyggð og var því allt slökkviliðið kallað út. Enginn eldur var hins vegar í húsnæðinu og í ljós kom að um gabb var að ræða.

Fram kemur á lögregluvefnum að nokkru síðar hafi karlmaður á þrítugsaldri verið handtekinn og játaði hann að hafa staðið fyrir gabbinu, en gat engar skýringar gefið á athæfinu.

Það er alvarlegt mál að gabba viðbragðsaðila og verður maðurinn látinn svara til saka fyrir athæfið. Þá má búast við að Slökkvilið Akureyrar fari fram á bætur fyrir þann kostnað sem af útkallinu leiddi.

Frétt af mbl.is