Gleðileg jól

Kæru landsmenn

Við hjá Slökkviliði Akureyrar óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

Árið hefur verið okkur hagsælt, lítið um brunatjón og slys færri en oft áður.  Fyrir það ber að þakka.  Best er ef við getum notað sem mest af tíma okkar í fyrirbyggjandi starf. Meðfylgjandi myndir sína einmitt slíkt starf en þær eru teknar í vor þegar allir elstu árgangar leikskólanna heimsóttu okkur sem var uppskeruhátíð verkefnisins um Loga og Glóð. Á myndinni hér að neðan er slökkviliðsstjóri að taka flugið af einskærri hamingju.

Kærar kveðjur

Slökkviliðskonur- og menn

Slökkviliði Akureyrar

Váá, þvílík sveifla, Þorbjörn tekst á loft !!