Heimsókn félaga okkar

Tveir hópar komu til okkar á slökkvistöðina á laugardaginn. Starfsmenn Slökkviliðs Húsavíkur komu fyrir hádegi í hópferð og starfsmenn Slökkviliðs Skagafjarðar komu í hópferð eftir hádegi. Það var gaman að spjalla við félaga okkar um málefni slökkviliða. Tíminn er fljótur að fljúga þegar menn gleyma sér í spjalli um atburði, tæki, mannskap og æfingar.