Hrísey

Dagarnir 21. til 23. júlí eru “Hríseyjar helgin” og vorum við félögum okkar, slökkviliðsmönnunum í Hrísey, innan handar ef og þegar aðstoðar þurfti með. Mikið var að gerast í eyjunni vegna fjölskylduskemmtunarinnar og frábærlega að öllu staðið eins og öllu öðru sem Hríseyingar gera, hvort heldur er fjölskylduskemmtun eða málefni slökkviliðs.