Mikið að gerast hjá námsskeiðsmönnum okkar !

Það sem af er hafa námskeiðsmenn okkar sem eru 4 verið í bóklegri kennslu þ.e. “starfsmaðurinn”, “reykköfun” og  “olíueldar”. Í olíueldum voru verklegar æfingar að hluta til dagsins í gær en að öllu leiti verklegt í dag. Æfingar dagsins í dag eru í Krossanesi, þar sem námskeiðsmenn ásamt vakthafandi vakt og starfsmönnum Olíudreifingar æfa verklag við hinar ýmsu aðstæður sem geta myndast þar sem hættur eru miklar og sérhæfðra aðgerðra er þörf.