Miklar annir í sjúkraflugi.

Miklar annir voru í sjúkraflugi í gær mánudaginn. 29 október. Fyrsta sjúkraflugið hófst kl 08:45 um
morguninn og var flugvélin stöðugt að til kl 03:30. Flogið var með alls 8 sjúklinga í 6 flugum,
en tvisvar sinnum voru fluttir tveir sjúklingar í einu. Það sem af er þessu ári hafa verið fluttir 417
sjúklingar í 393 flugferðum.