Móðir og barn vakna við reykskynjara...

Reykræsting
Reykræsting

Rétt eftir 22 var Slökkvilið Akureyrar kallað að Hólabraut þar sem móðir og barn sofnuðu út frá potti á eldavél. Reykskynjari gerði viðvart og þau komust af sjálfsdáðum út. Sendur var dælubíll ásamt sjúkrabíl. Ekki reyndist þörf á að flytja neinn. Íbúðin var reykræst en engar skemmdir voru á húsnæði né innanstokksmunum.