Ný heimasíða sjúkraflugs

Björn Gunnarsson læknir, sem er læknisfræðilegur forsvarsmaður sjúkraflugsins, er ábyrgðarmaður síðunnar og hafi menn ábendingar athugasemdir eða við innihald hennar má láta hann vita með tölvupósti eða símtali. Á síðunni má m.a. finna leiðbeiningar um útköll og fljótlega koma einnig leiðbeiningar um útköll þar sem um er að ræða þungaðar konur og nýbura.  

Björn vonast til að þessi vefsíða komi öllum aðilum flugsins að gagni og að bætt upplýsingaflæði verði til þess að þjónusta við sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk haldi áfram að eflast.