Nýr slökkviliðsstjóri

Þorbjörn er 39 ára og hefur starfað undanfarin ár sem yfirmaður heilsu- og öryggismála hjá Arnarfelli en Arnarfell hefur verið í stórum verkefnum við Kárahnjúkavirkjun.  Þorbjörn var áður slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði Akureyrar og þar áður hjá Slökkviliði Reykjavíkur. Hann er með Bsc. próf í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri.

Gert er ráð fyrir að Þorbjörn komi til fullra starfa 1. desember nk.

Slökkvilið Akureyrar býður Þorbjörn velkominn til starfa!