Segjum stopp!!

Hér á Akureyri verður gengið frá þyrlupalli við FSA, niður Þórunnarstræti, suður Glerárgötu inn á Ráðhústorg. Í lok göngu verður stutt athöfn til minningar um þá sem látið hafa lífið í umferðinni og til að sýna fórnarlömbum samstöðu. Þar mun Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur halda stutta tölu. Að lokum verður 31 blöðru sleppt á báðum stöðum til minningar um þá sem létu lífið í umferðinni í fyrra.

Vonast er til að sem flestir mæti í gönguna og taki með sér fjölskyldu, vini og vandamenn.