Sjúkraflug komið í gang

Sjúkraflugvél Mýflugs er nú að flytja tvo sjúklinga frá Egilsstöðum til Reykjavíkur og mun að því loknu fara aftur til Egilsstaða og ná í aðra tvo sjúklinga.  Óskað var eftir fyrra fluginu nú í morgun og hefur verið beðið eftir því að fá grænt ljós á flugið.  Með í fluginu eru tveir sjúkraflutningamenn frá Slökkviliði Akureyrar ásamt lækni frá FSA.