Slökkvilið kallað í eld

Eldur kviknaði í herbergi á 2. hæð og varð heimilisfólkið ekki vart við það fyrr en nágranni úr næstu götu kom og gerði þeim viðvart. Íbúar höfðu náð að slökkva eldinn áður en Slökkviliðið kom á staðinn. Slökkvilið kláraði að slökkva í glóðum og reykræsti síðan íbúðina. Skemmdir urðu töluverðar af völdum reyks.