Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn með reynslu

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Að loknum sex mánaða reynslutíma verður tekin ákvörðun um fastráðningu eftir að umsækjandi hefur gengist undir próf í þeim þáttum sem tilgreindir eru í hæfniskröfum.
 
Hæfniskröfur:
  • Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.
  • Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið.
  • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu.
  • Þeir sem ráðnir eru til starfa sem slökkviliðsmenn skulu hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa jákvætt hugarfar og færni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla af störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna skilyrði.
 
Framangreindum hæfniskröfum er ekki raðað eftir mikilvægi.
Akureyrarbær áskilur sér rétt til að óska eftir meðmælum.
 
Umsækjendur þurfa að skila inn eftirfarandi fylgigögnum:  
Læknisvottorði, sakavottorði, prófskírteinum og ljósriti af ökuskírteini og ökuferilsskrá.
 
Fylgigögnum má annað hvort skila til Slökkviliðs Akureyrar eða senda á rafrænu formi í umsóknarferli á heimasíðu Akureyrarbæjar. Fylgigögnum verður að skila eigi síðar en 4. júní.

Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í starfið. 
 
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna.
 
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma 460-1060.
 
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingimar Eydal, aðstoðarslökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, á staðnum eða í síma 461-4200, fax: 461-4205.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
 
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.
 
Umsóknarfrestur er til 4. júní 2008