Snarræði íbúa kom í veg fyrir tjón

Íbúi þar hafði vaknað við reykjarlykt.  Við nánari athugun reyndist vera eldur í skrautkerti í stofu.  Íbúinn sýndi mikið snarræði, sótti slökkvitæki og slökkti eldinn en hringdi síðan í 112.

Tjón varð óverulegt en þetta sýnir mikilvægi þess að vera með eldvarnir í góðu lagi og bregðast rétt við.

Kertaskreytingin var keypt tilbúinn og mun lögreglan láta Löggildingarstofu kanna hvort hún standist kröfur sem gerðar eru til slíkra kerta.