Tvö eldútköll á sama tíma

Áður en slökkviliðið kom á vettvang höfðu snarráðir nágrannar dregið gáminn frá skólanum og forðað frekara tjóni.  Á sama tíma og slökkviliðið kom á staðinn barst önnur tilkynning um eld í gámi við Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð og var einnig sendur dælubíll þangað.   Ekki var mikill eldur í þeim gámi en hann var fullur af pappír og tók nokkurn tíma að slökkva hann.  Dælubíll frá slökkvistöðinni á Akureyrarflugvelli lauk síðan slökkvistarfi við Kiðagil en reyklosa þurfti húsið.  Skemmdir eru nokkrar utanhúss en einnig einhverjar reyksskemmdir innandyra. 

Rétt er að huga að staðsetningu slíkra ruslakara og gáma, sjá mynd að neðan.