Útskriftardagur Loga og Glóð

Mikill áhugi /© mynd Þorgeir Baldursson
Mikill áhugi /© mynd Þorgeir Baldursson

Þessi heimsókn er liður í verkefni sem er unnið í samvinnu við Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands. Þetta er  sjötta árið með þetta verkefni sem hefur gengið mjög vel. Það eru elstu börnin í leikskólunum sem vinna að þessu verkefni með okkur og skoða leikskólann sinn einu sinni í mánuði, þar sem farið er yfir nokkur öryggisatriði í leikskólunum. Verkefnið er í rauninni tvískipt við byrjum á því að heimsækja leikskólana á haustin og ræðum við starfsfólkið sem kemur til með að sjá um verkefnið fyrir leikskólans hönd. Í október fórum við síðan í heimsókn í alla leikskólana á stór Akureyrarsvæðinu, ( Svalbarðseyri, Hrafnagil, Hörgárbyggð með líka)   Þar sem að tveir 2 slökkviliðsmenn heimsóttu börnin og kynntu þeim verkefnið og sýndu þeim svo slökkvibifreið í framhaldi. Alls heimsóttum við 17 leikskóla í þessu verkefni í vetur.

Við endum síðan veturinn á því að bjóða leikskólabörnunum í heimsókn á slökkvistöðina.  Þar sem að þau glímdu við þrautabraut og fengu m.a. að sprauta vatni og skoðuðu búnað liðsins. Grillaðar pylsur voru í boði og ekki var verra að komast í rútuferð til og frá svæðinu.

Slökkvilið Akureyrar þakkar þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn við að gera þetta mögulegt.