Vatnsleki

Við komuna á staðinn reyndist lekinn umtalsverður og hefur öll vakthafandi vakt verið á staðnum við upphreinsun og dælingar. Ekki er ljóst á þessari stundu hversu mikið tjón hefur orðið en hreinsun og dæling hefur staðið yfir í um fjóra tíma. Við skoðun á staðnum virðist sem loki inn á brunaslöngu hafi verið opinn og slangan sjálf gefið sig undan þrýstingi.