Logi og Glóð

Logi og Glóð fræða leikskólabörn um eldvarnir
Slökkvilið Akureyrar heimsækir elstu börnin í leikskólunum á svæðinu árlega til þess að fræða börnin og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Slökkviliðsmenn hafa slökkviálfana Loga og Glóð sér til halds og trausts í þessum heimsóknum en þau eru sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðsins í verkefninu. Hafa heimsóknirnar mælst vel fyrir. Tilgangur þeirra er einnig að tryggja traustar eldvarnir í leikskólunum sjálfum í samvinnu við starfsfólk.
Verkefnið byrjar í byrjun september ár hvert og fer þá fulltrúi slökkviliðsins og tekur út brunavarnir í öllu leikskólunum á svæðinu.
Verkefnið nær yfir um 20 leikskóla sem eru á starfssvæðinu.
Verkefnið fór af stað vorið 2007 og er markmið þess þríþætt:
- Að tryggja að eldvarnir í leikskólunum verði ávallt eins og best verður á kosið.
- Að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf slökkviliðsmanna og búnað.
- Að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilisins í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig ná má því marki.
Við upphaf verkefnisins gera aðilar með sér samkomulag um eldvarnir og fræðslu. Slökkviliðið afhendir ýmis gögn sem tengjast verkefninu. Í samkomulagi um eldvarnir og fræðslu er kveðið á um hlutverk aðilanna.
Hér er hægt að fræðast meira um Loga og Glóð og samband þeirra við leikskólabörnin.
Hér fyrir neðan eru tvær stuttmyndir um Loga og Glóð sem börnunum eru sýnd.