Árið 2024 í tölum

Elva Dögg Pálsdóttir • 14. janúar 2025

Slökkvilið Akureyrar var kallað út 4.171 sinnum árið 2024.

 Varðliðið sinnti 3.066 sjúkraflutningum á landi árið 2024, en af þeim voru 29% útkalla í forgangi F1 og F2. Farið var í 282 flutninga út fyrir starfssvæði liðsins, og er það aukning um 38% frá árinu 2023. Fækkun var á erlendum ferðamönnum milli ára um 14%.


Sjúkraflugið er stór partur af starfsemi liðsins en farið var í 943 sjúkraflug á árinu 2024 með 973 sjúklinga. Það er aukning um 3% í sjúkraflugum á milli áranna 2023 og 2024. Um 44% fluga ársins 2024 voru í forgangi F1 og F2. Í 6,4% tilfella var flogið með gjörgæslusjúkling og í 7% tilfella var flogið með fleiri en einn sjúkling. Alls var flogið með 33 sjúklinga í 30 flugum þar sem upphafs- eða áfangastaður flugs var utan landsteina Íslands.


Dælubílar voru kallaðir út 162 sinnum árið 2024 en það er 17% aukning frá árinu 2023.

Eftir Elva Dögg Pálsdóttir 26. maí 2026
Árlega heimsækir Slökkvilið Akureyrar elstu börnin í leikskólunum á Eyjafjarðarsvæðinu til þess að fræða börnin um eldvarnir. Í heimsóknunum nýtur Slökkviliðið aðstoðar Bjönis brunabangsa. Börnin fá fræðslu um eldvarnir og fá að kynnast starfi slökkviliðsmanna og búnaðinum sem þeir nota í starfi sínu. Í heimsóknunum á leikskólana fá börnin bók um Björnis brunabangsa, en í henni eru meðal annars þrautir, verkefni og fræðsla um eldvarnir. Þriðjudaginn 12. maí síðast liðinn var haldin útskriftarhátíð fyrir börnin úr elstu deildum leikskólanna sem þakklætisvott frá Slökkviliðinu fyrir þá góðu vinnu sem þau hafa sinnt í brunavörnum í leikskólunum í vetur. Þá voru leikskólarnir sóttir á rútum og boðið í heimsókn á Slökkvistöðina þar sem þau glímdu meðal annars við þrautabraut, fengu að æfa sig á brunaslöngunum og prófa reykköfun. Í ár kom Björnis brunabangsi sjálfur í heimsókn og tók myndir með börnunum og að sjálfsögðu var brunadansinn stíginn. Að lokum var svo öllum boðið upp á grillaðar pylsur og safa. Um 350 börn mættu á Slökkvistöðina og áttu með okkur frábæran dag. Við viljum þakka þessum flottu krökkum og starfsfólki leikskólanna fyrir heimsóknina og samveruna í vetur.
Eftir Elva Dögg Pálsdóttir 25. febrúar 2026
Slökkvilið Akureyrar var kallað út 4.115 sinnum árið 2025.
Sýna meira